Jæja en einn vikan búin. Það er voðalega lítið búið að vera gerast
hjá mér núna. Fór á föstudaginn til rvk að kaupa Itrip en síðast
þegar ég ætlaði að kaupa það var það ekki til og mér sagt að koma
aftur eftir 2 vikur því þá væri það örugglega komið. Ég fór svo til
þeirra í appel búðina og þá var þetta ekki enþá komið! Helvítis
Appelbúðdrasl. Itrip er víst ekki til Evrópu og þeir í appel vita
ekki hvenar það á eftir að geta komið. En allavega keypti ég í
staðin keypti ég bílahleðslutæki með innbyggðu útvarpsendi. Virkar
ágætlega fyrir utan að það suðar geðveikt í tækinu þegar ég þarf að
gefa aðeins í. En það er bara minniháttar vandamál... ekkert sem
maður kyppir sér upp við. Ætli maður kaupi ekki Itripið
einhverntíman seinna
Á laugardaginn skellti ég mér svo til konunar á Hvammstanga. Ég var
svo rómatískur að ég gaf henni blóm og geisladisk og hún var alveg
mjög ánægð með það og var mér launað það vel seinna um kvöldið

En
já laugardagurinn fór að mestuleiti í spjall og rólegheit. Ég,
Steinunn og Eyþór pöntuðum okkur pizzu um kvöldið og horfðum á DVD.
Myndin sem varð fyrir valinu var Ringer með Johnny Noxville (man
ekki hvenrig það er skrifað). Hún var um frekar vonlausan gaur sem
ákvaður að svindla Ólympíuleikum fattlaðra. Hún kom bara nokkuð á
óvart og var bara helvíti skemmtileg.
Á sunnudeginum var Steinunn að vinna morgunvagt svo ég þurfti að
hanga heima hjá henni til 4 einn. Tíminn var notaður í að rippa 100
diskana, bæði ástalagadiskinn og sumarlagadiskinn og að horfa á
Cartoon Network. Dýrka cartoon network. Væri alveg til í að kaupa
mér pakkan hjá 365 svo ég geti horft á teiknimyndir

Steinunn kom
svo klukkan 4 og við ákvaðum að nota tíman til að liggja upp í
rúmmi og spjalla og kéla

Ég fór svo bara heim klukkan 8 og var
kominn heim klukkan 10
Í dag var svo vinna frá 7 til 7 hjá L/V og svo í galító til 9. Ég
var að verða brjálaður útí galító því klukkan 9 fékk ég fimm
pantanir í einu og ég hélt að ég myndi bara aldrei komast heim. Á
morgunn verður svo jafn mikil vinna þannig það verður voðalega
lítið gert nema vinna. Það er nóg vinna hjá mér hjá L/V þannig ég
bíst við að ég verð að vinna til 7 alla vikuna nema á föstudaginn
því þá ætla ég að hætta klukkan 4 og svo á að skella sér norður í
útilegu á aðal partýpleisinu, Hólum í Hjaltadal

Er reyndar að
pæla að skella mér til rvk einhverntímann í vikunni, sennilega á
fimtudaginn og kaupa mér tjald en eins og ættuð að vita ef þið
lesið bloggið mitt þá er tjaldið mitt of lítið fyrir
vindsængina
Ég ætla að láta þetta nægja enda orðið miklu meira heldur en ég
ætlaði að hafa í byrjun bloggsins!
Kveðja Vinnualkinn!